Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   þri 17. nóvember 2020 14:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Derby
Hamren hefur trú á Englandi á EM - Segir Grealish auðvitað góðan
Icelandair
Erik Hamren.
Erik Hamren.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Enski fréttamaðurinn Rob Dorsett bar upp spurningar til Erik Hamren, landsliðsþjálfara Íslands, um enska landsliðið og Jack Grealish á fréttamannafundi Ísland í morgun. Ísland mætir Englandi í Þjóðadeildinni á morgun.

Grealish hefur verið frábær með Aston Villa og komið sterkur inn í enska A-landsliðið.

„Auðvitað hef ég séð hann spila, en ég vil ekki tala of mikið um einstaklinga," sagði Hamren.

„England er með marga góða leikmenn. Hann er auðvitað góður leikmaður; ef þú spilar fyrir England þá ertu auðvitað góður leikmaður."

Dorsett spurði Hamen einnig út í enska landsliðið almennt, hvert hans álit væri á liðinu og hvort að hann telji að liðið geti barist um að vinna EM á næsta ári. England hefur ekki staðið undir væntingum í Þjóðadeildinni og er aðeins með sjö stig eftir fimm leiki.

„Ég hef trú á Englandi. Úrslitin í Þjóðadeildinni eru kannski ekki það sem þeir bjuggust við en það er mikill munur á Þjóðadeildinni og Evrópumótinu. Það er á hreinu. Þetta er líka sérstakt ástand vegna kórónuveirufaraldursins. Ekki dæma þá of mikið. Ég hef mikla trú á að enska liðið verði gott á EM."
Athugasemdir
banner