Jose Mourinho vill fá nýjan sóknarmann til Tottenham í janúarglugganum í ljósi þess að Harry Kane er líklegast frá út tímabilið.
Son Heung-min og Lucas Moura hafa verið að spila sem fremsti maður í fjarveru Kane en hvorugur þeirra er sóknarmaður að upplagi.
„Við þurfum sóknarmann ef mögulegt. Við þurfum rétta sóknarmanninn," sagði Mourinho.
„Við erum með góða framherja í liðinu eins og Son, Lucas, Lamela, Lo Celso og Dele Alli en okkur vantar leikmann sem getur spilað einn uppi á topp.
„Við erum að gera allt í okkar valdi til að bæta við réttum sóknarmanni en það er ekki auðvelt."
Athugasemdir