Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
banner
   mið 18. mars 2020 13:41
Elvar Geir Magnússon
Coutinho til Chelsea?
Mynd: Getty Images
Diario Sport á Spáni segir að Chelsea hafi haft samband við Barcelona vegna áhuga á að fá Philippe Coutinho.

Brasilíski landsliðsmaðurinn er á lánssamningi hjá Bayern München.

Inter hefur einnig áhuga á að fá Coutinho og er mögulegt að hann verði hluti af samkomulagi varðandi Lautaro Martínez sem er á óskalista Börsunga.

Bayern er með ákvæði um að geta keypt Coutinho fyrir 120 milljónir evra í lok tímabilsins en sagan segir að félagið hyggist ekki nýrta sér það.
Athugasemdir
banner
banner