Fotbolti.net
18.07.21 - 10:28
Brynjar Ingi Erluson

Inter vill fá Bellerin og Telles

Hector Bellerin í leik með Arsenal

Hector Bellerin í leik með Arsenal

Canon

Mynd: EPA

Ítalska félagið Inter hefur áhuga á því að fá Hector Bellerin og Alex Telles í sumar.
Félagið seldi frá sér Achraf Hakimi til Paris Saint-Germain á dögunum og þarf því að fylla í skarðið fyrir hann en Bellerin, leikmaður Arsenal, er efstur á lista.

Inter vill einnig bæta við sig leikmanni í vinstri bakvarðarstöðuna og er Alex Telles í umræðunni.

Giuseppe Marotta, yfirmaður knattspyrnumála hjá Inter, staðfesti áhugann á þessum tveimur leikmönnum.

Bellerin gæti haft mikinn áhuga á að breyta um umhverfi en það mun reynast erfiðara að sannfæra Telles um að koma til Ítalíu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.