Arsenal heimsótti Brentford og fór létt með nágranna sína í Lundúnaslag í dag.
Liðin mættust á svipuðum tíma í fyrra og hafði Brentford þá betur í heimaleiknum, með 2-1 sigri.
Ivan Toney fór á Twitter eftir sigurinn og potaði aðeins í Arsenal-menn en Gabriel Magalhaes, miðvörður Arsenal, svaraði honum í dag.
Gabriel tísti nákvæmlega sömu orðum og Toney hafði gert fyrir ári síðan. Þau má sjá hér fyrir neðan.
Nice kick about with the boys. ⚽️❤️🤍 @Arsenal
— Gabriel Magalhaes (@biel_m04) September 18, 2022
Nice kick about with the boys. ⚽️ @BrentfordFC
— Ivan Toney (@ivantoney24) August 13, 2021
Athugasemdir