Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 19. mars 2021 07:15
Fótbolti.net
Ný Ölgerðar-hraðmót að fara af stað hjá Frídeildinni
Frídeildin
Frídeildin
Mynd: Frídeildin
Í kvöld hefst hin sérstaka leikvika 29 þar sem einungis fjórir leikir fara fram. Ástæðan fyrir svo fáum leikjum er sú að átta liða úrslit ensku bikarkeppninnar verða spiluð um helgina.

Frídeildin hrindir úr vör tveimur hraðmótum í samstarfi við Ölgerðina. Annars vegar er um að ræða hraðmót Pepsi Max og hins vegar hraðmót Tuborg léttöls. Í báðum mótunum verða að sjálfsögðu glæsileg verðlaun í boði í formi drykkjarfanga og meðlætis. Mótin hefjast sem fyrr segir í kvöld við upphaf leikviku 29. Þá hefst nýtt spennandi hraðmót Steve Dagskrá í leikviku 30 sem fjallað verður nánar um síðar.

Að lokum vill Frídeildin minna á hlaðvarp Frídeildarinnar þar sem farið er yfir það helsta sem FPL stjórar þurfa að hafa í huga fyrir komandi leikviku en góður gestur kom í settið. Smelltu hér til að hlusta á nýjasta þáttinn.


SKRÁ SIG HÉR

Athugasemdir
banner