Fotbolti.net
19.09.18 - 22:28
Magnús Þór Jónsson

Helgi Sig: Þeir voru betri á flestum sviðum fótboltans

Auglýsing
Helgi Sig: Þeir voru betri á flestum sviðum fótboltans
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Helgi Sigurðsson gat ekki verið sáttur með sína menn í Fylki í 3-0 tapi gegn Breiðabliki í Pepsi-deildinni í kvöld.

„Við vorum ekki nógu góðir í dag, þannig er það. Þeir voru betri á flestum sviðum fótboltans,\" sagði Helgi í viðtali við Fótbolta.net eftir leikinn.
Fylkir hafði ekki spilað keppnisleik í 19 daga fyrir leikinn í kvöld. „Það er aldrei ákjósanlegt að spila ekki keppnisleik í 19 daga en ég ætla ekki að kenna því um. Við mættum ekki nægilega vel stemdir inn í þennan leik.\"

„Það lítur þannig út eins og menn hafi ekki haft trú en það verður líka að hrósa Breiðablik, þeir sýndu meiri baráttu en við. Þá er erfitt að spila gegn eins góðu liði og Blikar eru. Þeir eru góðir í fótbolta og refsuðu okkur.\"

Næsti leikur Fylkis er gegn KR. Ef Fylkir tapar þeim leik gæti verið von á úrslitaleik við Fjölni í lokaumferðinni um sæti í Pepsi-deildinni.

„Við vitum það að við vorum slakir í dag, þá er eitt að gera fyrir gott keppnislið og það er að rífa sig í gang. Þekkjandi strákanna þá munu þeir gera það.\"

Viðtalið er í heild sinni hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.