Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 20. apríl 2021 21:10
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
England: Markalaust á Brúnni - Chelsea upp í 4. sætið
Mynd: EPA
Chelsea 0 - 0 Brighton
Rautt spjald: Ben White, Brighton ('90)

Það var markalaust í eina leik kvöldsins í ensku úrvalsdeildinni. Brighton heimsótti Stamford Bridge, heimavöll Chelsea, og náði í gott stig.

Leikurinn var ekki upp á marga fiska og var leikinn í skugga allrar umræðunnar um Ofurdeildina í kvöld.

Danny Welbeck átti skot í stöng og var það sennilega sú tilraun í kvöld sem var hvað næst því að verða að marki.

Í uppbótartima fékk Ben White að líta rautt spjald þegar hann stöðvaði Callum Hudson-Odoi í góðri stöðu. White fékk sitt annað gula spjald fyrir brotið.

Chelsea er með stiginu komið upp í 4. sætið, liðið er með betri markatölu en West Ham. Þau lið mætast innbyrðis um helgina.

Brighton færist fær fallsvæðinu með stiginu.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner