20.05.21 - 08:00
Ívan Guðjón Baldursson
Zlatan ekki búinn að gefast upp: Ekki búið fyrr en ég segi

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Zlatan Ibrahimovic, 39 ára gamall sóknarmaður AC Milan og sænska landsliðsins, vill ólmur ná síðasta stórmóti leikmannaferils sins.
Svíþjóð fer á EM í sumar en Zlatan meiddist á dögunum og var það staðfest að hann myndi missa af mótinu.
Zlatan sættir sig þó ekki við það ef marka má myndband sem hann birti á Instagram í gær.
Þar er Svíinn goðsagnakenndi í frábæru formi á æfingahjóli. Við myndbandið skrifar Zlatan: „Þetta er ekki búið fyrr en ég segi að þetta sé búið."