Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 20. maí 2022 07:00
Brynjar Ingi Erluson
Mbappe ætlar að velja PSG fram yfir Real Madrid - „Peningar tala"
Kylian Mbappe ætlar að hafna Real Madrid
Kylian Mbappe ætlar að hafna Real Madrid
Mynd: EPA
Franskir og spænskir blaðamenn hafa nú á tilfinningunni að Kylian Mbappe ætli sér að vera áfram hjá Paris Saint-Germain og hann tilkynni það á sunnudagsmorgun.

Það er alveg óhætt að segja það að saga Mbappe, Real Madrid og Paris Saint-Germain fer að verða ansi þreytt.

Hann hefur tekið sér óralangan tíma í að taka ákvörðun en mun þó væntanlega opinbera ákvörðun sína klukkan 09:00 á Telefoot á sunnudagsmorgun.

Spænska félagið Real Madrid hefur síðustu vikur haft mjög góða tilfinningu fyrir því að Mbappe gangi til liðs við félagið og í raun alveg síðan á síðasta ári.

Blaðamenn á Spáni greina nú frá því að Mbappe hafi tilkynnt Real Madrid að hann vilji vera í eitt til tvö ár til viðbótar hjá PSG og ganga svo til liðs við félagið.

Mbappe er með himinhá tilboð frá báðum félögum en Real Madrid er reiðubúið að greiða honum 100 milljónir evra í undirskriftabónus ofan á þær 25 milljónir evra sem hann myndi þéna á ári. PSG á meðan ætlar að greiða honum ríflega 50 milljónir evra í árslaun og 100 milljónir evra í undirskriftabónus.

Edu Aguirre, fréttamaður á El Chiringuito, sagði frá því í gær að PSG ætlaði að leyfa Mbappe að ráða því hver myndi þjálfa liðið og þá fengi hann einnig að velja hvaða leikmenn koma inn í liðið og fara út úr því. Hann yrði í raun bara yfirmaður knattspyrnumála.

Romain Molina, einn virtasti blaðamaðurinn í Frakklandi, gefur nú vísbendingu um það á Twitter að peningarnir í Katar hafi unnið kapphlaupið.

Tilfinningin er sú að Mbappe tilkynni á sunnudag að hann ætli að vera áfram hjá PSG. Það á eftir að koma í ljós en miðað við hvernig þetta hefur verið síðustu vikur, mánuði og ár, þá er alveg eins von á því að nýr þáttur af þessari sápuóperu birtist síðar í dag.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner