Marcus Rashford, framherji Manchester United, var ósammála Jurgen Klopp eftir jafntefli gegn Liverpool. Hann segir að Liverpool hafi ekki átt skilið úr leiknum.
„Við áttum stigin þrjú skilið. Mér fannst þeir ekki nægilga góðir til að fá jafntefli eða sigur, en svona er fótboltinn. Við misstum af stóru tækifæri."
Rashford skoraði mark United í fyrri hálfleiknum, en Adam Lallana jafnaði þegar fimm mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma.
„Vonandi getum við náð sigri í vikunni og komist á skrið."
„Það hafa verið aðrir leikir á þessu tímabili þar sem við höfum verið mjög óheppnir. Við getum spilað mikið betur, sérstaklega í sóknarleiknum. Við getum enn bætt okkur, en við áttum að vinna þennan leik í dag."
Athugasemdir