Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 20. nóvember 2020 08:00
Victor Pálsson
Rakitic þakkar Messi fyrir
Mynd: Getty Images
Ivan Rakitic, leikmaður Sevilla, hefur þakkað Lionel Messi fyrir tíma þeirra saman hjá félaginu.

Messi er af mörgum talinn besti leikmaður heims og verið það í mörg ár og af sumum sá besti sem hefur spilað fótbolta.

Rakitic yfirgaf Barcelona fyrir sitt gamla lið í sumar en hann talar ekkert nema vel um argentínska snillinginn.

„Með fullri virðingu fyrir öðrum goðsögnum þá er aðeins einn leikmaður númer eitt og það er Leo," sagði Rakitic.

„Að fá að spila 311 leiki með honum, það var draumi líkast. Ég naut þess svo, svo mikið og vil því koma þessu á framfæri."

„Takk fyrir allt saman Leo því þú munt aldrei skilja hversu þýðingarmikið það var fyrir mig að spila þér við hlið."

Athugasemdir
banner
banner
banner