„Þetta er auðvitað súrt en stundum þarftu að finna fyrir sársaukanum að tapa," sagði Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkings, eftir 2-0 tap gegn KA í bikarúrslitaleiknum á Laugardalsvelli.
Þetta var fimmti bikarúrslitaleikur Arnars sem þjálfara Víkings en sá fyrsti sem hann tapar.
Þetta var fimmti bikarúrslitaleikur Arnars sem þjálfara Víkings en sá fyrsti sem hann tapar.
Lestu um leikinn: KA 2 - 0 Víkingur R.
„Við þurfum að mæta sterkir til leiks það sem eftir lifir sumars. Það er nóg eftir. Ég vil nota tækifærið og óska KA innilega til hamingju. Þetta er skemmtilegt stund. Ég er ekki að segja að það hafi verið gaman að tapa fyrir þeim en til hamingju KA."
„Þeir voru baráttuglaðir og fórnuðu sér fyrir allt. Við vorum ekki slakir en fundum ekki glufur."
Það voru nokkur vafaatriði í leiknum og Arnar var oft pirraður á dómgæslunni á meðan leik stóð. Var hann ósáttur við dómgæsluna í leiknum?
„Það var mikið af vafaatriðum og stundum fellur þetta hinum megin. Það er ekkert við því að gera. Hvort að KA hafi verið miklu betri í dag, ég er ekki alveg tilbúinn að kaupa það. En þeir eiga kannski sigurinn sannarlega skilið."
„Ef vafaatriðin voru rétt, þá var þetta stórkostlega dæmdur leikur. Ef þau eru röng, þá dregur það niður einkunnagjöfina."
Ertu að fara að skoða vafaatriðin beint eftir leik?
„Nei, það skiptir engu máli úr þessu. Hvað þýðir það?"
„Við verðum að nota sársaukann til að knýja okkur áfram núna. Það er hættulegur tími framundan. Það er hættulegt að vorkenna sér of mikið," sagði Arnar.
Allt viðtalið í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir