Spænski miðjumaðurinn Rodri var besti maður vallarins í 3-0 sigri Manchester City á Everton í ensku úrvalsdeildinni í dag en það er Sky Sports sem gefur leikmönnum einkunnir.
Raheem Sterling, Rodri og Bernardo Silva gerðu mörk City í leiknum en það var mark Rodri sem stóð upp úr. Hann þrumaði boltanum af 25 metra færi efst í vinstra hornið.
Cancelo og Rodri fá báðir 8 í dag á meðan Michael Keane fær lægstu einkunn, 4.
Man City: Ederson (6), Walker (6), Stones (7), Laporte (7), Cancelo (8), Rodri (8), Gundogan (6), Silva (7), Foden (6), Palmer (6), Sterling (7).
Varamenn: Ake (5), Mahrez (6).
Everton: Pickford (5), Coleman (5), Godfrey (6), Keane (4), Digne (6), Allan (5), Delph (5), Gray (5), Gordon (5), Townsend (7), Richarlison (5).
Varamenn: Iwobi (6), Rondon (5).
Athugasemdir