Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   lau 22. febrúar 2020 10:46
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Kolbeinn æft á fullu í tvær vikur - Ætlar að skora í öllum leikjum
Kolbeinn Sigþórsson er á mála hjá AIK í Svíþjóð.
Kolbeinn Sigþórsson er á mála hjá AIK í Svíþjóð.
Mynd: Getty Images
Kolbeinn jafnaði markamet Eiðs Smára Guðjohnsen með landsliðinu síðastliðið haust.
Kolbeinn jafnaði markamet Eiðs Smára Guðjohnsen með landsliðinu síðastliðið haust.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Freyr Alexandersson, aðstoðarlandsliðsþjálfari karla, segir ekki rétt að Kolbeinn Sigþórsson sé varla búinn að æfa með sænska liðinu AIK á undirbúningstímabilinu í Svíþjóð.

Rikard Norling, þjálfari AIK, sagði í vikunni að Kolbeinn hefði varla æft með AIK á undirbúningstímabilinu. „Hann hefur varla spilað og varla æft. Hann hefur átt svolítið erfitt undirbúningstímabil hingað til," sagði Norling, en Kolbeinn hefur verið að glíma við veikindi.

Freyr segir þessar fréttir slitnar úr samhengi. „Þessar fréttir voru aðeins slitnar úr samhengi og eðlilegt hvernig þjálfari AIK nálgaðist fjölmiðla í Svíþjóð því það eru gífurlegar væntingar til Kolbeins hjá AIK," sagði Freyr í samtali við Vísi.

„Hann hefur æft á fullu núna í tvær vikur en er samt ekki kominn eins langt og bæði við og AIK vonuðumst eftir."

Freyr segir að Kolbeinn ætti að vera í góðu standi í umspilinu fyrir EM í næsta mánuði - ef ekkert kemur upp á. Ísland mætir þá Rúmeníu á Laugardalsvelli.

Kolbeinn ætlar að skora í hverjum einasta leik
Kolbeinn var á dögunum í viðtali við Fotbolldirekt í Svíþjóð og tekur Íslendingavaktin það viðtal upp.

Í því viðtali segist Kolbeinn hafa sett sér það markmið að skora í hverjum einasta leik á komandi tímabili.

„Ég set mér markmið og eitt þeirra er að skora í hverjum einasta leik. Að mínu mati er ég fullfær um það," sagði landsliðsframherjinn.

Hann ætlar sér að hjálpa AIK að endurheimta meistaratitilinn í Svíþjóð. Keppni í sænsku úrvalsdeildinni hefst í byrjun apríl.
Athugasemdir
banner
banner
banner