Heimild: mbl.is
Leikmaður karlaliðs Fylkis hefur greinst með Covid-19 með þeim afleiðingum að bæði lið Fylkis og Stjörnunnar eru á leið í sóttkví.
Þetta kemur fram á mbl.is.
Um er að ræða einn leikmann í liði Fylkis og hann lék með liðinu á laugardaginn þegar það tapaði gegn Stjörnunni í 8-liða úrslitum Lengjubikarsins.
Fyrir vikið þurfa Stjörnumenn líka að fara í sóttkví og leikmenn beggja liða í skimun.
Þórólfur Guðnason sagði á Bylgjunni að nokkrir hefðu greinst smitaðir innanlands um helgina en endanleg tala lægi ekki fyrir.
Athugasemdir