Fotbolti.net
22.07.19 - 19:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Sky: Þarf eitthvað risastórt til þess að Bale fari frá Real

Sky: Þarf eitthvað risastórt til þess að Bale fari frá Real
Canon

Mynd: Getty Images

Framtíð Gareth Bale hjá Real Madrid liggur í lausu lofti. Leikmanninum virðist ekkert liggja á að yfirgefa félagið en Zinedine Zidane, stjóri Real, vill lítið með velska vængmanninn hafa.

Í morgun var Gareth Bale orðaður við félagaskipti til Kína og nú í kvöld fékk Sky þær heimildir að eitthvað risastórt og sérstakt þyrfti að gerast til þess að Bale myndi yfirgefa Real Madrid.
Þá segir Sky að mögulega þyrfti Bale að komast nærri því að verða launahæsti leikmaður heims til þess að yfirgefa Madrid.

Bale varð þrítugur í síðustu viku og hefur skorað 78 deildarmörk í 155 leikjum fyrir Real.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.