Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram var sáttur með niðurstöðuna í leik Fram og Fylkis sem fram fór í kvöld á Lambhagavellinum í neðra hluta Bestu deildar karla.
Lestu um leikinn: Fram 2 - 0 Fylkir
„Ég er mjög ánægður með hvernig menn koma gíraðir inn í leikinn, vinnum 2-0, höldum hreinu, Fylkir ógnaði okkur mikið.''
„Þeir voru að taka mikla sénsa og mér fannst við ekki alveg nógu góðir í að refsa, fara hraðar upp og búa til dauðafæri því þeir voru galopnir. Þeir voru að berjast fyrir lífi sínu og tóku alla sénsa í heimi, ég skil það en þeir sluppu ágætlega með það.''
Viðltalið í heild sinni má sjá í spilaranum hér að ofan, en þar fer Rúnar nánar ofan í leikinn og fleiri málefni.
Athugasemdir