Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 23. apríl 2019 23:00
Arnar Helgi Magnússon
Skiljanlegt að Zaha vilji yfirgefa Crystal Palace
Mynd: Getty Images
Scott Dann, varnarmaður Crystal Palace, segir skilja það vel að Wilfried Zaha vilji yfirgefa félagið í sumar.

Zaha hefur verið frábær á leiktíðinni fyrir Crystal Palace, líkt og undanfarin ár. Hann skoraði eitt marka Palace í sigri á Arsenal um helgina.

„Það vilja allir leikmenn spila á stærsta sviðinu og með bestu liðunum. Zaha er dæmi um það," segir Dann.

„Hann stefnir hátt og þegar leikmaður er með svona mikil gæði þá er ansi líklegt að það séu stærri lið þarna úti sem að horfa til hans."

Dann segir að Zaha sé samt sem áður með hugann við Palace.

„Svo lengi sem að hann er hér mun hann leggja sig 100% fram og hann hefur gert það hingað til."
Athugasemdir
banner
banner
banner