Fyrri umferðin í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu kláraðist í kvöld með tveimur leikjum.
Úrslit kvöldsins:
Meistaradeildin: Man City og Real Madrid í lúxusstöðu
Úrslit kvöldsins:
Meistaradeildin: Man City og Real Madrid í lúxusstöðu
Það vekur athygli að í fyrstu átta leikjunum í útsláttarkeppninni vann útiliðið í sjö tilvikum. Aldrei hafa útlitiðin unnið fleiri leiki í fyrri viðureing í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.
Kórónuveirufaraldurinn hefur sett strik í reikninginn. Þau lið sem mættu ensku félagsliðunum þurftu að sætta sig við það að leika heimaleikinn sinn á hlutlausum velli út af reglum í tengslum við faraldurinn í Englandi. Leikirnir fóru fram í Búdapest og Búkarest.
Hér fyrir neðan má sjá úrslitin í fyrri leikjunum í 16-liða úrslitunum en seinni leikirnir fara fram í næsta mánuði.
Staðan eftir fyrri leikina:
RB Leipzig 0 - 2 Liverpool
Barcelona 1 - 4 PSG
Porto 2 - 1 Juventus
Sevilla 2 - 3 Borussia Dortmund
Lazio 1 - 4 Bayern München
Atletico Madrid 0 - 1 Chelsea
Gladbach 0 - 2 Man City
Atalanta 0 - 1 Real Madrid
7 - The away team has won seven of the eight first leg games in the Round of 16 this season, a record at this stage of the competition since it was introduced in 2003-04. Conquered. pic.twitter.com/i9BnlWhIBU
— OptaJoe (@OptaJoe) February 24, 2021
Athugasemdir