| fös 24.apr 2026 17:00 Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð |
|
Spá þjálfara og fyrirliða fyrir Lengjudeildina: 1. sæti
Fótbolti.net kynnir liðin sem leika í Lengjudeildinni í sumar eitt af öðru eftir því hvar þeim er spáð. Við fengum alla fyrirliða og þjálfara í deildinni til að spá fyrir sumarið og fengu liðin stig frá 1-11 eftir því en ekki var hægt að spá fyrir sínu eigin liði. Í efsta sæti er Þróttur Reykjavík og fara þeir beint upp ef spáin rætist.
Spáin:
1. Þróttur R., 218 stig
2. Fylkir, 213 stig
3. Njarðvík, 209 stig
4. Afturelding, 201 stig
5. HK, 158 stig
6. Vestri, 155 stig
7. Grindavík, 110 stig
8. ÍR, 104 stig
9. Leiknir R., 95 stig
10. Grótta, 68 stig
11. Ægir, 51 stig
12. Völsungur, 15 stig
1. Þróttur R.
Þróttur fer inn í nýtt tímabil í Lengjudeild karla sem eitt heitasta liðið í deildinni og er spáð efsta sætinu. Uppgangurinn í Laugardalnum síðustu ár hefur verið markviss og eftirtektarverður, þar sem félagið hefur byggt upp sterkan kjarna af uppöldum leikmönnum sem hafa vaxið með verkefninu. Árangurinn hefur fylgt þessari stefnu og nú virðist allt benda til þess að liðið sé tilbúið að taka næsta skref. Væntingarnar eru orðnar meiri en áður og í fyrsta sinn um tíma fer Þróttur inn í tímabil sem eitt líklegasta liðið til að fara upp. Það eitt og sér breytir stöðunni, nú þarf liðið ekki aðeins að vera gott, heldur líka að standast pressuna sem fylgir því að vera efst á blaði. Það eru sannarlega spennandi hlutir að gerast í Laugardalnum og ef Þróttur nær að byggja ofan á þann grunn sem hefur verið lagður, halda áfram að þróa sína ungu leikmenn og sýna flotta frammistöðu, þá gæti þetta orðið tímabilið þar sem félagið stígur skrefið upp í Bestu deildina.
Þjálfarinn: Sigurvin Ólafsson stýrir hlutunum í Laugardalnum og þar fer af honum gríðarlega gott orð. Hann tók við liðinu eftir tímabilið 2023 og er núna á leið inn í sitt þriðja tímabil sem aðalþjálfari Þróttar. Sigurvin þjálfaði KV frá 2018-2021 og kom liðinu úr 3. deild upp í Lengjudeildina. Hann var síðan aðstoðarþjálfari hjá KR og FH áður en hann mætti í Laugardalinn. Frá því að Venni tók við Þrótti hefur uppgangurinn verið markviss og liðið spilað skipulagðan en á sama tíma góðan fótbolta. Það er mikil trú á Venna í Laugardalnum og víðar en hann hefur sýnt þessu verkefni mikla trú og tryggð þar sem hann hefur ekki sýnt öðrum félögum áhuga þótt þau sýni honum áhuga. Hann er einn mest spennandi þjálfari landsins og er með áhugaverðar hugmyndir.
Álit Badda
Fótboltaþjálfarinn Baldvin Már Borgarsson er sérfræðingur Fótbolta.net fyrir Lengjudeildina. Hann rýnir í öll liðin fyrir tímabilið sem er framundan.
Spennandi sumar í Laugardalnum
„Þróttarar eru eins og gefur að skilja með rosalega spennandi og skemmtilegt lið, enda er þeim spáð efsta sæti í deildinni, en ég hef aðeins verið að tyggja á áhyggjum mínum af breidd liðsins, frábært byrjunarlið en það má lítið út af bregða hjá liðinu hvað varðar meiðsli og leikbönn."
„Venni hefur sannað sig sem einn mest spennnandi þjálfari landsins og Þróttarar spila frábæran fótbolta eftir því, þeir verða alltaf í þessari baráttu og það er spennandi sumar í vændum í Laugardalnum!"
Lykilmenn: Hlynur Þórhallsson og Adam Árni Róbertsson
Hlynur er einn öflugasti varnarmaður deildarinnar en hann var eftirsóttur í vetur og reyndi ÍA meðal annars að kaupa hann. Hlynur hefur leikið frábærlega með Þrótti síðustu árin og vann sér inn sæti í U21 landsliðinu í síðasta landsliðsglugga. Hlynur er orðinn lykilmaður í Þrótti þrátt fyrir ungan aldur og spilar stórt hlutverk í sumar. Annar leikmaður sem mun spila stórt hlutverk er sóknarmaðurinn Adam Árni Róbertsson sem var keyptur frá Grindavík í vetur. Adam skoraði 14 mörk í 19 leikjum með Grindavík síðasta sumar og hann þarf að finna markaskóna í Laugardalnum.
Gaman að fylgjast með: Sigurður Egill Lárusson
Það er líklega skrítið að setja 34 ára gamlan leikmann hérna en Sigurður Egill er eitt stærsta nafnið í þessari deild. Hann hefur lengi verið í Val, var eiginlega bara orðinn húsgagn á Hlíðarenda, en núna er hann kominn í nýtt verkefni og verður bara gaman að fylgjast með honum í nýju umhverfi. Hann mun taka mikið pláss inn á vellinum og utan hans, og gæti verið púslið sem fleytir Þrótti upp í Bestu deildinni. Hann kemur til með að leysa alls konar stöður líka fyrir Þróttara.
Komnir:
Sigurður Egill Lárusson frá Val
Adam Árni Róbertsson frá Grindavík
Aron Dagur Birnuson frá Stjörnunni (á láni)
Tryggvi Snær Geirsson frá Fram
Farnir:
Kári Kristjánsson í FH
Liam Daði Jeffs í ÍBV
Viktor Andri Hafþórsson í Fjölni
Hrafn Tómasson í KR (var á láni)
Sigfús Árni Guðmundsson í Fram (var á láni)
Emil Skúli Einarsson í Gróttu
Benoný Haraldsson í Þrótt Vogum á láni
Fyrstu þrír leikir Þróttar:
25. apríl, Þróttur R. - Njarðvík (AVIS völlurinn)
1. maí, Þróttur R. - ÍR (AVIS völlurinn)
9. maí, Völsungur - Þróttur R. (GPG völlurinn)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð