Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 25. janúar 2022 14:35
Elvar Geir Magnússon
Juventus búið að ná samkomulagi um Vlahovic
Dusan Vlahovic.
Dusan Vlahovic.
Mynd: EPA
Samkvæmt Sky Sport Italia hafa Juventus og Fiorentina náð samkomulagi um kaup fyrrnefnda félagsins á serbneska sóknarmanninum Dusan Vlahovic.

Samkvæmt fréttum þá mun Juventus kaupa þennan 21 árs leikmann á 75 milljónir evra. Enn eigi þó eftir að setja upp samning um hvernig greiðslum verður háttað.

Samkvæmt La Gazzetta dello Sport þá hefur Vlahovic þegar gert samkomulag við Juventus um kaup og kjör og fimm ára samning.

Vlahovic skoraði 33 mörk í 43 leikjum fyrir Fiorentina 2021 en aðeins Robert Lewandowski skoraði fleiri mörk í stærstu deildum Evrópu.

Stuðningsmenn Fiorentina eru alls ekki sáttir við fyrirhuguð félagaskipti Vlahovic til Juventus og hengdar voru upp hótanir við heimavöll Fiorentina í Flórens eins og fjallað var um í morgun.
Athugasemdir
banner
banner
banner