Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 25. febrúar 2021 21:03
Aksentije Milisic
Fabregas hrósar Saka í hástert - Frábær í kvöld
Mynd: Getty Images
Arsenal mætti Benfica í síðari leik liðanna í 32-liða úrslitum Evrópudeildarinnar en leikið var í Grikklandi vegna Covid-19.

Arsenal lenti í kröppum dansi en náði að snúa einvíginu sér í vil í síðari hálfleik. Pierre-Emerick Aubameyang skaut Arsenal áfram þegar þrjár mínútur voru til leiksloka.

Hinn ungi Bukayo Saka var frábær í liði Arsenal í kvöld en hann lagði upp tvö mörk og spilaði mjög vel. Cesc Fabregas hrósaði Saka á Twitter í kvöld eins og margir aðrir. Gary Lineker tók undir með honum.

„Saka er svo góður leikmaður. Svo þroskaður og gáfaður miðað við aldur. Breytir leiknum," sagði þessi fyrrverandi leikmaður Arsenal.

Arsenal var 1-2 undir í kvöldi þurfti tvö mörk til viðbótar til að komast áfram. Það tókst og vonin um að komast í Meistaradeild Evrópu með því að vinna Evrópudeildina lifir því enn.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner