25.04.21 - 16:05
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
England: Dagný lék allan leikinn gegn Everton - Tvær umferðir eftir

Dagný í landsleik síðasta haust

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Dagný í landsleik síðasta haust

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

<b>West Ham 0 - 0 Everton</b>
Dagný Brynjarsdóttir lék allan leikinn þegar West Ham gerði markalaust jafntefli gegn Everton í ensku kvennadeildinni.
West Ham er með fjórtán stig í 9. sæti þegar tvær heilar umferðir eru eftir. Sum lið eiga reyndar þrjá leiki eftir þar sem leikjum var frestað vegna covid.
West Ham á leik til góða og er með tveggja stiga forskot á botnlið Bristol City fyrir lokasprettinn.
Fyrr í dag vann Arsenal 2-0 sigur gegn Brighton, Birmingham gerði jafntefli við Reading og Manchester United lagði Tottenham að velli með þriggja marka sigri.
Sjá einnig:
Myndband: Kennedy með stórkostlegt mark gegn Man Utd