Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 25. júlí 2020 09:00
Aksentije Milisic
Man Utd skoðar að kaupa Coman
Mynd: Getty Images
Manchester United er sagt vera skoða þann möguleika að kaupa Kingsley Coman frá Bayern Munchen.

United vill styrkja kanstöðurnar og samkvæmt The Athletic þá er Kingsley Coman einn af þeim sem liðið horfir til.

United hefur mikið verið orðað við Jadon Sancho, leikmann Dortmund, en talið er að Coman sé næsti maður á blað mistakist Rauðu djöflunum að fá Sancho.

Dortmund vill fá 100 milljónir punda fyrir Sancho og ekki er víst að United sé tilbúið til þess að greiða sú upphæð.

Því er Coman talinn líklegri kostur en hann skoraði sjö mörk og lagði upp önnur sjö í 35 leikjum á þessu tímabili fyrir þýsku risana.
Athugasemdir
banner
banner
banner