Núna er í gangi leikur nágrannaliðanna AC Milan og Inter í 8-liða úrslitum ítalska bikarsins.
Staðan í hálfleik er 1-0 fyrir Milan og var það Zlatan Ibrahimovic - hver annar - sem skoraði markið.
Þegar flautað var til hálfleiks sauð upp úr á vellinum. Zlatan og Romelu Lukaku, fyrrum liðsfélagarnir hjá Manchester United, voru reiðir við hvorn annan og það þurfti að aðskilja þá.
Lukaku varð bálreiður út af einhverju sem Zlatan sagði. Hann varð verulega reiður og bölvaði bæði Zlatan og eiginkonu hans. Ekki er vitað nákvæmlega hvað Zlatan sagði til að gera Lukaku svona reiðan, en svo virðist sem það hafi verið eitthvað tengt móður Lukaku.
Zlatan vs. Lukaku 🍿 pic.twitter.com/9j4ETKEEgx
— B/R Football (@brfootball) January 26, 2021
Zlatan said to Lukaku: “I'll give you €500 for every time you get your first touch right tonight” 😂🤣 pic.twitter.com/TpEMMrurBZ
— Footy Humour (@FootyHumour) January 26, 2021
Athugasemdir