Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   mán 27. mars 2023 16:07
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Stuðningsmenn Tottenham svara - „Mjög áhugavert og segir ýmislegt"
Þetta gerðist fyrr á tímabilinu. Báðir þessir menn hafa núna verið reknir.
Þetta gerðist fyrr á tímabilinu. Báðir þessir menn hafa núna verið reknir.
Mynd: Getty Images
Hjálmar, Jóhann Alfreð og Ingimar.
Hjálmar, Jóhann Alfreð og Ingimar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hörður Ágústsson.
Hörður Ágústsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Julian Nagelsmann.
Julian Nagelsmann.
Mynd: EPA
Endurkoma í kortunum hjá Pochettino?
Endurkoma í kortunum hjá Pochettino?
Mynd: EPA
Það var tilkynnt um það í gær að Tottenham hefði tekið ákvörðun um að láta Ítalann Antonio Conte fara. Þetta var ekki samstarf sem virkaði mjög vel.

Cristian Stellini, sem var aðstoðarmaður Conte, mun stýra liðinu út þetta tímabil með Ryan Mason sér til aðstoðar.

En hvað segja stuðningsmenn Tottenham á Íslandi við þessum fréttum? Og hver á að taka við? Skoðum það.

Sjá einnig:
„Ég skil hann mjög vel, ég var ekki ósammála einu einasta orði"

Hjálmar Örn Jóhannsson, skemmtikraftur
Það eru gríðarleg vonbrigði að missa Conte, en eftir rantið hans á blaðamannafundinum var ekkert annað hægt að gera. Ég vil ekki sjá Poch, það skip er siglt úr höfn. Tottenham ætti að ná í Thomas Frank en hann getur unnið leiki án þess að þurfa trilljóna budget. Hinn kosturinn væri Michael Carrick eða Nagelsmann en ég hef því miður grun um að Þjóðverjinn lendi í sömu súpu og Móri, Poch og Conte lentu í.

Hörður Ágústsson, sölu- og markaðsstjóri
Að reka Conte er að pissa í skóinn sinn.

Pochettino, Mourinho og Conte ættu hver og einn að hafa skilað titli bara á þeim gæðum sem þeir sem stjórar koma með. Galið að reka Conte ef fjórða sæti í fyrra og fjórða sæti núna er lélegur árangur. Hópurinn er í ruglinu og enginn balance. Svo þarf að factora inn leikmannakaup síðan 2018.

Það er vissulega búið að eyða peningum en ekki á réttan hátt. Richarlison á 60milljónir? Þegar okkur vantar að minnsta kosti tvo miðverði í hæsta klassa?

Það er ekki enn búið að finna menn í stað Rose, Vertonghen, Alderweireld, Eriksen og Dele.

Þar til þetta verður lagað þá skiptir ekki máli hver er stjóri. Breytingin sem þarf er að losna við Enic og Daniel Levy en þeir hafa meiri áhuga á tónleikum, NFL og Formúlu 1 tekjum í gegnum nýja völlinn.

Tottenham er fótboltafélag. Ekki 'entertainment venue'.

Ingimar Helgi Finnsson, útvarpsmaður og þjálfari
Ég held að þetta hafi verið það eina rétta úr stöðunni úr því sem komið var. Það var augljóslega þreyta á milli Conte og leikmanna. Miðað við það sem Conte hefur sagt á blaðamannafundum í vetur var augljóst að hann var ekki með rétt hugarfar. Það er auðvitað mikið búið að ganga hjá honum í einkalífinu, búinn að missa þrjá góða vini á stuttum tíma. Sjálfur veiktist hann. Ég held að hann hafi komið of snemma til baka eftir aðgerðina og ekki verið með öllum mjalla. Þetta er auðvitað súrt þar sem við vorum að spila besta fótboltann á Englandi fyrir ári síðan. En svona er fótboltinn, hann er fljótur að breytast.

Það er áhugavert að sjá að Stellini, aðstoðarmanni Conte, er treyst áfram ásamt Ryan Mason. Það segir mér að vandamálið var Conte mikið til. Ef þeir treysta Stellini til að halda áfram en ekki Conte, það er mjög áhugavert og segir ýmislegt.

Varðandi hver tekur við, þá hafa nokkrir verið nefndir til sögunnar. Sem mikill rómantíker þá vil ég fá Pochettino aftur heim. En númer eitt á blaði hjá mér Nagelsmann. Ég væri til í að fá ungan, sóknarsinnaðan gaur með skýra hugmyndafræði. Það er kominn nóg af negatífum nellýum í Mourinho, Nuno og Conte. Núna þarf Levy að standa við stóru orðin og ráða þjálfara sem vill spila skemmtilegan bolta, sóknarbolta og hafa eitthvað plan sem er lengra en tólf mánuðir fram í tímann.

Af þeim sem hafa verið nefndir til sögunnar þá er ég langmest spenntur fyrir Nagelsmann og Pochettino. Ég ætla að standa við það.

Ég hlakka til að sjá innkaupastefnuna breytast. Ekki kaupa leikmann eins og Ivan Perisic aftur. Ég hlakka til að sjá það. Það er enn og aftur nýtt upphaf á White Hart Lane. Það verður áhugavert að sjá hvort Kane fari eða að nýr stjóri byrji á Kane-lausu Tottenham og þurfi þá að byrja algjörlega frá núllpunkti. Bæði er spennandi. Ég veit að það hljómar asnalega en það yrði þá bara nýtt upphaf.

Jóhann Alfreð Kristinsson, grínisti og spurningahöfundur
Niðurstaðan er auðvitað vonbrigði en kemur ekki á óvart í ljósi nýjustu vendinga. Conte átti sína spretti fyrir félagið en það var fyrir nokkru orðið ljóst að hann átti sér ekki framtíð þar. Manni líður því miður eins og síðustu ár hafi að miklu leiti farið í súginn í framþróun félagsins. Ég er „hopeless romantic" og vil bara sjá Pochettino aftur á hliðarlínunni. Poch og Spurs voru rétt að byrja.

Sjá einnig:
„Ég skil hann mjög vel, ég var ekki ósammála einu einasta orði"
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner