Fotbolti.net
28.01.25 - 10:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Kristian á leið til Sparta Rotterdam

Kristian Nökkvi Hlynsson.

Kristian Nökkvi Hlynsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Miðjumaðurinn Kristian Nökkvi Hlynsson er á leið til Sparta Rotterdam sem er í fallbaráttu í hollensku úrvalsdeildinni.

Hann fer þangað á láni út tímabilið en ekki er kaupmöguleiki í lánssamningnum. Hjá Sparta verður hann liðsfélagi Nökkva Þeys Þórissonar sem gekk í raðir félagsins í þessum mánuði.
Það hefur verið mikill áhugi á Kristian síðustu daga og hefur hann verið orðaður við Twente, NEC Nijmegen og Go Ahead Eagles. Einnig hefur hann verið bendlaður við Fortuna Düsseldorf í Þýskalandi.

En hann hefur ákveðið að ganga í raðir Sparta Rotterdam. Þar þekkir hann þjálfarann, Maurice Steijn, sem þjálfaði hann hjá Ajax á síðasta tímabili.

Kristian, sem er afar spennandi leikmaður, er samningsbundinn Ajax til 2026 en núna fær hann tækifæri til að spila meira.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.