Fotbolti.net
29.01.25 - 16:18
Enski boltinn

Ræddu um áhuga Man Utd á Hákoni - Sögulegt ef það raungerist

Hákon Arnar Haraldsson.

Hákon Arnar Haraldsson.

Canon

Mynd: Getty Images

Rætt var um áhuga Manchester United á Hákoni Arnari Haraldssyni í síðasta þætti af Enski boltinn hlaðvarpinu.

Hákon Arnar hefur verið að gera afskaplega góða hluti með Lille í Frakklandi og nýverið hafa njósnarar frá Newcastle og Man Utd mætt á leiki hjá honum.
„Vinir mínir duglegir að senda mér skjáskot“
TENGT EFNI

„Vinir mínir duglegir að senda mér skjáskot“

Hákon er stuðningsmaður Man Utd en það gæti farið svo að hann verði fyrsti íslenski leikmaður í sögu félagsins.

„Ég ætla að vona það að hann fari ekki að eyðileggja ferilinn sinn snemma," sagði Magnús Haukur Harðarson, stuðningsmaður Liverpool, léttur í þættinum þegar rætt var um áhuga United á Hákoni en það hefur ekki gengið vel hjá Man Utd undanfarin ár.

„Hann var ógeðslega góður á Anfield og sýndi hvar hann er staddur í sinni vegferð," sagði Magnús.

Hákon er leikmaður sem myndi þó örugglega henta vel inn í það leikkerfi sem Rúben Amorim er að spila með United, þetta 3-4-3 kerfi sem hann er að vinna með.

„Hann myndi 100 prósent passa inn í þetta kerfi en málið er það að hann einn er ekki að fara að leysa þessi 8000 vandamál sem eru í gangi á Old Trafford. Það er stóra málið í þessu. Hann hefði engan senter til að gefa á og lélega vængbakverði til að spila með. Það virðist ekkert ganga upp sem gerist þarna," sagði Baldvin Már Borgarsson.

Baldvin býst við Hákon fari frá Lille í síðasta lagi í sumar, en það er bara spurning hvert.

„Hann er búinn að vera stórkostlegur í síðustu leikjum. Var mjög góður á Anfield eins og Maggi kom inn á," sagði Baldvin.

„Ég held að Hákon verði líklega topp fimm leikmaður í sögu Íslands. Auðvitað snýst það líka um meiðsli. Vonandi meiðist hann ekki mikið oftar. Eiður Smári og Ásgeir Sigurvins eiga bestu ferla Íslendinga. Hákon er á leiðinni þangað, það er alveg klárt mál," sagði Magnús.

„Það verður virkilega gaman að sjá hvernig ferill hans mun þróast og hvort hann verði fyrsti Íslendingurinn í sögu Manchester United. Það væri risastórt og fyrir mig sem Man Utd mann, væri það ógeðslega gaman," sagði Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson í þættinum sem hægt er að hlusta á í heild sinni hér fyrir neðan.
Hákon á æfingu með íslenska landsliðinu.

Hákon á æfingu með íslenska landsliðinu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hákon í leik gegn Liverpool á dögunum.

Hákon í leik gegn Liverpool á dögunum.

Canon

Mynd: Getty Images

<b>Enski boltinn</b> - Hákon Arnar, þrot hjá Tottenham og umtalað rautt spjald

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.