fös 31. janúar 2020 19:17
Ívan Guðjón Baldursson
Man Utd skoðar Ighalo - Tilboði Tottenham hafnað
Mynd: Getty Images
Odion Ighalo gæti verið aftur á leið í ensku úrvalsdeildina á lánssamningi út tímabilið. Sky Sports greinir frá þessu.

Nígeríski sóknarmaðurinn leikur fyrir Shanghai Shenhua um þessar mundir en býr yfir reynslu úr ensku úrvalsdeildinni eftir dvöl sína hjá Watford.

Tottenham og Manchester United eru bæði á höttunum eftir sóknarmanni vegna meiðsla Harry Kane og Marcus Rashford.

Sky greinir frá því að Shanghai hafi hafnað lánstilboði frá Tottenham í Ighalo, en Manchester United sé enn að skoða að fá hann á láni í sex mánuði.

Ighalo er 30 ára gamall og gerði 15 mörk í 37 deildarleikjum á sínu besta úrvalsdeildartímabili.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner