31.01.23 - 23:37
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ítalski bikarinn: Darmian hetja Inter


Mynd: EPA


Mynd: EPA
<b>Inter 1 - 0 Atalanta</b>
1-0 Matteo Darmian ('57 )
Átta liða úrslitin í ítalska bikarnum hófust í kvöld með einum leik. Inter fékk Atalanta í heimsókn.
Inter var með nokkra yfirburði í fyrri hálfleik en náði þó ekki að skapa sér nein alvöru færi. Staðan markalaus í hálfleik.
Áfram gekk báðum liðum illa að ógna marki í síðari hálfleik en það var þó á 57. mínútu þegar Matteo Darmian skoraði fyrir Inter eina mark leiksins og tryggði liðinu því farseðilinn í undanúrslit.
Þar mætir liðið sigurvegaranum í viðureign Lazio og Juventus.
