Bayern á eftir ungstirni Bournemouth - Konate eftirsóttur
Maggi er ósáttur með mark Fylkis: Boltinn var aldrei inni
Heimir: Þurfum að setjast niður og læra af þessu
Sölvi Geir: Það fór smá um mann
Seinn á fund í gær en skoraði þrennu í kvöld: Fokking mikil sekt
Hemmi: Helvíti ódýr mörk og einstaklingsmistök
Siggi Höskulds: Leikmenn Stjörnunnar vilja greinilega hafa Jökul í starfi
Halli: Þurfum að hugsa okkar gang
Gunnar Heiðar: Ég vissi ekki að við ætluðum allt í einu að setja inn gjafaleik FM
Jökull vísaði í leikplan Arsenal þegar hann hrósaði Þór
Brynjar Björn um rauða spjaldið: Þetta er nú eina trixið sem ég kann
Lagði upp fjögur mörk í Eyjum - „Þetta var upp á líf og dauða fyrir okkur“
Luke Rae: Mér fannst aldrei líklegt að þeir myndu koma til baka
Skoraði draumamark en þarf að hætta tuða - „Kontra hann svo í Samúel”
Hilmar Árni: Það þarf oft lítið til að meiða okkur
Linta: Ég vil óska strákunum til hamingju
„Mér fannst þeir orðnir hræddir"
Jóhann: Grafalvarlegt fyrir okkur
Badu: Hef aldrei efast um karakterinn
Óskar Smári eftir sigurinn: „Ætli ég fari ekki bara til Tenerife í tvær vikur“
Jón Óli: Bjartsýnn á Allison og feginn með frábæra byrjun
   sun 31. maí 2026 22:47
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson
Heimir: Þurfum að setjast niður og læra af þessu
Lengjudeildin
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Vonbrigði, við vorum lang næst bestir í dag. Afturelding var töluvert betri en við. Mér fannst við reyndar ágætir fyrstu tuttugu mínúturnar en þeir voru klókir, ýttu okkur úr okkar leik, við réðum illa við fremstu tvo mennina hjá þeim. Sanngjarnt tap" sagði Heimir Guðjónsson, þjálfari Fylkis eftir 5-1 tap á úti velli gegn Aftureldingu.


Lestu um leikinn: Afturelding 5 -  1 Fylkir

Var frammistaðan léleg?

„Já, hún var ekki góð, fyrir utan fyrstu tuttugu mínúturnar. En Afturelding er með mjög gott lið og þeir refsuðu okkur, tvö mörk úr föstum leikatriðum. Við vorum ólíkir sjálfum okkur, en á móti kemur er þetta einn leikur og við þurfum að setjast niður og læra af þessu og koma sterkari til baka."

Þetta var ekki Fylkis frammistaðan sem við höfum séð hingað til?

„Nei, það fannst mér ekki. Mér finnst við hafa spilað vel síðan þetta mót byrjaði, aldrei gott að tapa en eins og ég sagði áðan við verðum að snúa bökunum saman og verða klárir í næsta leik. Erfiður leikur á móti Þrótti sem eru að mínu mati besta liðið í deildinni."

Missiði haus eftir fyrsta mark Aftureldingar?

„Nei, þeir gengu á lagið. Fengu sjálfstraust eftir að þeir skoruðu fyrsta markið, við kannski kóðnuðum aðeins niður. Mér fannst þeir góðir eftir markið, það var fjögur núll í hálfleik og leikurinn nánast búinn."


Slapp
banner
banner
banner