„Víkingar eru með frábært lið, þeir eru á toppnum og eru meistarar. Þetta eru helvíti ódýr mörk og bara einstaklingsmistök, það er ekkert flókið. Það er rándýrt og sló okkur út af laginu. Við vorum skrefinu á eftir en í seinni hálfleik breyttist það og þetta var miklu meiri leikur.“ sagði Hermann Hreiðarsson, þjálfari Vals, eftir 5-1 tap gegn Víkingum í kvöld á Hlíðarenda.
Lestu um leikinn: Valur 1 - 5 Víkingur R.
„Þetta eru einstaklingsmistök, það er ekkert flókið og það sjá það allir. En þetta er liðsíþrótt og þetta sló liðið út í heildina, það er bara staðreyndin.“
Jakob Franz átti mjög dapran fyrri hálfleik í kvöld.
„Fótboltinn er svona, ég ræddi bara við hann hvernig honum leið. Þetta var auðvitað þungur hálfleikur hjá honum. Þér er enginn greiði gerður þegar þér líður svona en svona er fótboltinn, shit happens. Honum var bara refsað þarna í tvö skipti.“
Eru þetta vond töp á heimavelli hjá Val? Þór, KR og svo núna stórt tap gegn Víkingum?
„Það fer alltaf eftir því hvernig þú tapar. Þór var flottur leikur og skítfúlt að tapa þeim leik. En KR vorum við öflugir í 20 mínútur en ekki góðir fyrir utan það.“
Viðtalið við Hemma má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
























