„Í fyrsta lagi er ég þreyttur, en auðvitað mjög ánægður að fara inn í landsleikjahléið með 25 stig. Ég er mjög ánægður með það," sagði Luke Rae leikmaður KR eftir 5-3 sigur gegn KA í dag.
Lestu um leikinn: KR 5 - 3 KA
KR hefur byrjað tímabilið mjög vel og Luke segist mjög ánægður í liðinu og kerfinu sem Óskar spilar.
„Mér líður mjög vel. Í fyrra vorum margir að tala um hvernig við spilum og fólk hélt að þetta væri aldrei að fara ganga, þrátt fyrir hvernig við enduðum. Á þessu tímabili er þetta bara búið að smella saman varnarlega og sóknarlega höfum við verið þetta ögn beittari. Sérstaklega í uppbyggingarfasanum, sem er svo mikilvægt fyrir leikstílinn okkar. Við viljum ekki vera að skilja eftir risa pláss fyrir lið að ráðast á. Auðvitað mun það alltaf gerast í leikjum en við höfum meðhöndlað þetta á réttan hátt og það er ástæðan fyrir því að við getum unnið leiki og eiginlega tekið yfir," sagði Luke.
KA menn voru nálægt því að koma til baka í leiknum en Luke segist aldrei hafa verið stressaður.
„Maður getur eiginlega ekki orðið stressaður sérstaklega þegar maður er þremur mörkum yfir. Auðvitað á endanum komust þeir inn í leikinn, við slökktum kannski aðeins á okkur á ákveðnum punktum. Mér fannst aldrei líklegt að þeir myndu koma til baka og ná jafnteflinu eða vinna leikinn. Mér fannst við alltaf frekar þægilegir með sigurinn," sagði Luke.
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan.























