Arsenal hlustar á tilboð í Jesus - Tottenham reynir við Gallagher - Liverpool orðað við varnarmann Frankfurt
   fim 08. febrúar 2018 19:00
Ívan Guðjón Baldursson
Alexis búinn að þrefalda treyjusölumetið
Mynd: Getty Images
Alexis Sanchez er nýkominn til Manchester United og er þegar búinn að bæta nokkur mismunandi met innan félagsins.

Alexis er þegar búinn að þrefalda gamla treyjusölumetið fyrir leikmann keyptan í janúar. Ed Woodward, varaformaður Man Utd, segir að treyjusala sé ekki eina staðfestingin á vinsældum framherjans.

„Við höfum aldrei fengið svona mikil viðbrögð við neinu sem við höfum birt á Instagram. Það voru tvær milljónir manna sem líkuðu við og skrifuðu ummæli undir myndina af honum þegar hann var kynntur," sagði Woodward.

„Færslur United á Twitter og Facebook eru þær mest deildu í sögu félagsins og þá var myllumerkið #Alexis7 það vinsælasta í heimi á Twitter.

„Til að setja þetta í samhengi var talað 75% meira um skipti Alexis til United heldur en skipti Neymar til Paris Saint-Germain síðasta sumar."

Athugasemdir
banner