þri 02. ágúst 2022 20:03
Brynjar Ingi Erluson
Besta deildin: Fyrsti sigur KR síðan í maí
KR-ingar eru í 6. sæti eftir sigur kvöldsins
KR-ingar eru í 6. sæti eftir sigur kvöldsins
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ásgeir Sigurgeirsson fór meiddur af velli í byrjun leiksins
Ásgeir Sigurgeirsson fór meiddur af velli í byrjun leiksins
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
KA 0 - 1 KR
0-1 Aron Þórður Albertsson ('16 )
Lestu um leikinn

KR marði KA, 1-0, er liðin mættust á Greifavelli í 15. umferð í Bestu deild karla í kvöld. Þetta var fyrsti sigur KR síðan í lok maí.

Heimamenn höfðu unnið síðustu þrjá leiki sína í deild á meðan KR hafði ekki unnið síðan 29. maí. Liðið hefur gengið erfiðlega að ná í hagstæð úrslit en þau komu loks í kvöld.

KA varð fyrir miklu áfalli á 11. mínútu er lykilmaður liðsins, Ásgeir Sigurgeirsson, fór meiddur af velli eftir hann fékk högg á hnéð eftir hornspyrnu.

Fimm mínútum síðar komst KR yfir. Aron Þórður Albertsson skoraði markið með góðu skoti eftir sendingu frá Kennie Chopart og gestirnir komnir yfir.

Nökkvi Þeyr Þórisson komst nálægt því að jafna á 29. mínútu en skot hans fór í stöng og þá átti Hallgrímur Mar Steingrímsson sömuleiðis fínustu tilraun en boltinn í stöng og útaf.

Heimamenn sóttu að marki KR-inga og reyndu að ná jöfnunarmarki áður en hálfleikurinn var úti en það gekk ekki upp.

Stefan Ljubicic kom sér í dauðafæri snemma í fyrri hálfleiknum en Dusan Brkovic náði að elta hann uppi og komast fyrir skotið. Stuttu síðar bjargaði Sveinn Margeir Hauksson á línu eftir hornspyrnu og heimamenn stálheppnir að vera ekki tveimur mörkum undir.

Mikill hiti færðist í leikinn þegar það leið á hann og átti Egill Arnar Sigurþórsson, dómari leiksins, erfitt með að hafa stjórn á mönnum.

KA vildi fá víti í uppbótartíma en fengu ekki. Arnar Grétarsson, þjálfari KA, fékk í kjölfarið rauða spjaldið fyrir mótmæli.

KR-ingar fagna fyrsta sigrinum síðan í lok maí og eru nú í 6. sæti með 21 stig á meðan KA er í 3. sæti með 27 stig. Stór sigur hjá Rúnari Kristinssyni og hans mönnum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner