Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   fös 03. desember 2021 22:30
Victor Pálsson
Martinez: Messi reyndi að fá mig til Barcelona
Mynd: EPA
Framherjinn Lautaro Martinez hefur staðfest það að Lionel Messi hafi reynt að sannfæra hann um að ganga í raðir Barcelona í fyrra.

Martinez er á mála hjá Inter Milan en hann er einnig hluti af argentínska landsliðinu líkt og Messi sem leikur í dag með Paris Saint-Germain.

Messi vildi mikið fá landa sinn til að skrifa undir á Nou Camp en án árangurs - Martinez skrifaði undir framlengingu fyrr á þessu ári.

Það var kannski öllum fyrir bestu þar sem fjárhagsstaða Barcelona varð til þess að Messi yfirgaf félagið í sumar.

„Það er rétt. Messi vildi fá mig til Barcelona. Við höfum margoft rætt saman í landsliðinu," sagði Martinez við SportMediaset.

„Hann talaði um stöðu félagsins en ég hef ávallt verið rólegur og viljugur að ræða við Inter um nýjan samning því ég er ánægður hérna."

„Ég er hæstánægður að fá að vera hér áfram, bæði ég og mín fjölskylda erum ánægð."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner