Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 07. ágúst 2021 23:00
Elvar Geir Magnússon
Bestur í 15. umferð - Ein af vanmetnustu hetjum þessa sumars
Aron Þórður Albertsson (Fram)
Lengjudeildin
Aron Þórður er leikmaður umferðarinnar.
Aron Þórður er leikmaður umferðarinnar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Aron Þórður Albertsson, leikmaður Fram, er leikmaður 15. umferðar Lengjudeildarinnar en hann var afskaplega góður í 2-0 sigri toppliðsins gegn Fjölni síðasta fimmtudag.

„Frábær inn á miðjunni fyrir framan varnarlínu Fram í kvöld bæði varnarlega og sóknarlega. Dreyfði spili Fram vel og það var mikill kraftur í Aroni í kvöld," skrifaði Anton Freyr Jónsson, fréttaritari Fótbolta.net, í skýrslu sinni um lekinn.

Stefán Pálsson, sagnfræðingur og Framari, skrifar skemmtilega pistla um leiki Fram á heimasíðu félagsins og hann fór einnig lofsamlegum orðum um Aron.

„Aron Þórður var frábær í leiknum – og er að verða ein af vanmetnustu hetjum þessa sumars," skrifaði Stefán í pistli sínum.

Rafn Markús Vilbergsson, sérfræðingur útvarpsþáttarins Fótbolti.net, tekur undir þetta og talar um öfluga liðsheild Framara.

„Hann er ein af þeim. Það eru margar hetjur í Framliðinu. Alveg frá aftasta manni til þess fremsta. Þetta er mjög góð blanda sem er í liðinu. Þeir eru að fara upp og það verður gaman að sjá hvernig þeir styrkja sig og í hvaða stöðum," segir Rafn.

Sjá einnig:
Úrvalslið 15. umferðar Lengjudeildarinnar

Fram hefur verið yfirburðarlið í Lengjudeildinni og er nú þrettán stigum fyrir ofan þriðja sætið. Það er bara tímaspursmál hvenær liðið tryggir sér sæti í efstu deild.

Leikmenn umferðarinnar í Lengjudeildinni:
14. umferð: Róbert Hauksson (Þróttur)
12. umferð: Halldór Páll Geirsson (ÍBV)
11. umferð: Björn Axel Guðjónsson (Grótta)
10. umferð: Albert Hafsteinsson (Fram)
9. umferð: Kairo Edwards-John (Þróttur)
8. umferð: Alvaro Montejo (Þór)
7. umferð: Sigurður Bjartur Hallsson (Grindavík)
6. umferð: Davíð Þór Ásbjörnsson (Kórdrengir)
5. umferð: Kyle McLagan (Fram)
4. umferð: Albert Hafsteinsson (Fram)
3. umferð: Gonzalo Zamorano (ÍBV)
2. umferð: Kristófer Óskar Óskarsson (Afturelding)
1. umferð: Pétur Theodór Árnason (Grótta)
Íslenski boltinn - Sambandsdeildin, Lengjan og Pepsi Max með Rabba
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner