Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 08. desember 2021 19:25
Brynjar Ingi Erluson
Besiktas vill senda Pjanic aftur til Barcelona
Miralem PJanic í leik með Besiktas
Miralem PJanic í leik með Besiktas
Mynd: EPA
Tyrkneska félagið Besiktas er alvarlega að íhuga það að rifta lánssamningnum sem það gerði við Miralem Pjanic, leikmann Barcelona. Spænski miðillinn Sport greinir frá.

Pjanic var lánaður frá Barcelona til Besiktas undir lok gluggans og átti að styrkja tyrkneska liðið töluvert.

Hann hefur hins vegar ekki haldið sér í leikformi og er aðeins með ellefu leiki á þessu tímabili.

Sport greinir frá því að Besiktas ætli sér nú að rifta samningnum við hann og senda hann aftur til Barcelona í janúar.

Pjanic kom til Barcelona frá Juventus á síðasta ári en tókst engan veginn að finna sig hjá Börsungum og var því lánaður til Besiktas út þessa leiktíð.
Athugasemdir
banner