Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 09. ágúst 2022 12:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Guðbjörg Gunnars spáir í 12. umferð Bestu deildar kvenna
Guðbjörg Gunnarsdóttir.
Guðbjörg Gunnarsdóttir.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sandra María Jessen.
Sandra María Jessen.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það verður heil umferð spiluð í Bestu deild kvenna í kvöld, tólfta umferð deildarinnar fer fram í heild sinni.

Telma Hjaltalín Þrastardóttir, leikmaður FH, var með fjóra rétta og þar á meðal þrjá hárrétta þegar hún spáði í elleftu umferð deildarinnar. Guðbjörg Gunnarsdóttir, fyrrum landsliðsmarkvörður, spáir í leiki kvöldsins.

ÍBV 3 - 1 KR (17:30 í dag)
Erfitt verkefni fyrir KR. ÍBV eru alltaf erfiðar á útivelli og vinna örugglega, 3-1. Olga Sevcova og Kristín Erna skora fyrir ÍBV og Guðmunda minnkar muninn fyrir KR í blálokin.

Þór/KA 2 - 0 Afturelding (17:30 í dag)
Þó að það skilji bara fjögur stig að milli liðanna þá mun Þór/KA eiga þennan leik frá upphafi til enda. Sandra María skorar bæði fyrir Þór/KA.

Keflavík 1 - 2 Valur (19:15 í dag)
Þetta verður baráttuleikur og Keflavík nær að halda Val í skefjum lengi í stöðunni 1-1. Það mun ekki nægja því Arna Sif mun skora með skalla eftir horn í lokin og mitt gamla lið Valur fer heim með þrjú stig.

Stjarnan 1 - 1 Breiðablik (20:00 í dag)
Stjarnan er alltaf í svakalegum gír þegar þær mæta Blikum heima. Leikurinn verður opinn og skemmtilegur og Stjarnan verður betri aðilinn í leiknum. Liðin í öðru og þriðja sæti verða bæði svekkt eftir leikinn með eitt stig.

Þróttur 1 - 2 Selfoss (20:00 í dag)
Þróttur kemst í 1-0, Selfoss mun snúa leiknum við og vinna með 1-2 eftir tryllta ræðu Bjössa í hálfleik.

Fyrri spámenn:
Telma Hjaltalín Þrastardóttir (4 réttir)
Óskar Smári Haraldsson (4 réttir)
Cecilía Rán Rúnarsdóttir (3 réttir)
Heimavöllurinn (3 réttir)
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir (3 réttir)
Helena Ólafsdóttir (2 réttir)
Hlín Eiríksdóttir (2 réttir)
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner