Klara Bjartmarz, framkvæmdastjóri KSÍ, segir að sambandið sé með til skoðunár kynþáttafordóma í leik Skallagríms og Berserkja í 4. deildinni síðastliðinn föstudag.
Gunnar Jökull Johns, leikmaður Berserkja, varð fyrir kynþáttafordómum í leiknum frá Atla Steinari Ingasyni leikmanni Skallagríms.
Gunnar Jökull Johns, leikmaður Berserkja, varð fyrir kynþáttafordómum í leiknum frá Atla Steinari Ingasyni leikmanni Skallagríms.
Twana Khalid Ahmad var dómari leiksins og talaði hann ensku við leikmenn í leiknum. Hann skildi því ekki hvað fór fram á milli leikmanna. Atvikið átti sér stað í byrjun seinni hálfleiks í leiknum en Atli fékk enga refsingu í leiknum sjálfum.
„Við erum að fara yfir hvaða gögn við höfum og hvaða fordæmi við höfum. Hann hlaut ekki refsingu í leiknum sem slíkum. Með hliðsjón af því skoðum við hvort að þetta fari í þann farveg að fara fyrir fund aganefndar á morgun," sagði Klara við Fótbolta.net í dag.
Sjá einnig:
Leikmaður Berserkja kallaður apaköttur og sagt að fara heim til Namibíu
Ábendingar um að sami maður hafi fengið tveggja ára bann frá KSÍ 2015
Leikmaður Skallagríms biðst afsökunar: Ummælin áttu ekki að vera rasísk
Yfirlýsing frá Skallagrími: Gripið til viðeigandi ráðstafana
Athugasemdir