Bryan Robson fyrrum leikmaður Manchester United hefur tjáð sig um stöðu Pogba og allar sögurnar sem myndast í kringum leikmanninn.
„Umboðsmenn vilja að leikmennirnir sínir færi sig í önnur félög til að græða pening og ef leikmenn eru trúir félaginu þá græðir umboðsmaðurinn minni pening."
Robson ráðleggur Pogba að hætta að hlusta á allar sögurnar og einbeita sér alfarið að Manchester United.
Mino Raiola er þekktur fyrir að valda usla hjá félögum til að græða pening.
Paul Pogba er nú staddur í Ástralíu með United þar sem hann lagði upp fyrra mark United gegn Perth Glory á Marcus Rashford.
Athugasemdir