Fotbolti.net
16.10.20 - 06:00
Victor Pálsson

Werner leit upp til Drogba og Lampard

Werner leit upp til Drogba og Lampard
Canon

Mynd: Getty Images

Timo Werner, leikmaður Chelsea, leit upp til bæði Didier Drogba og Frank Lampard á sínum yngri árum er þeir léku fyrir félagið.
Werner gekk í raðir Chelsea í sumar en þessi 24 ára gamli leikmaður þekkir vel til enska liðsins og fylgdist með því á sínum tíma.

„Þetta er í raun draumur að verða að veruleika að spila í stærstu deild heims. Sem krakki þá sérðu ekki mikið af liðum í Englandi en sérð þau í Meistaradeildinni," sagði Werner.

„Þú sérð lið á borð við Chelsea og Manchester United. Á mínum yngri árum voru þetta liðin sem voru að vinna mikið."

„Þar sá maður ungan Cristiano Ronaldo eða hér hjá Chelsea Didier Drogba og líka Frank Lampard. Það hafa margar goðsagnir spilað hér."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.