Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 18. febrúar 2020 12:15
Elvar Geir Magnússon
Ásgeir Sigurgeirs: Ætti að vera klár þegar alvaran hefst
Ásgeir Sigurgeirsson er 23 ára.
Ásgeir Sigurgeirsson er 23 ára.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
„Það er enn mánuður eða tveir í mig. Ég var hjá lækni í gær og þá kom í ljós að það eru 4-5 vikur í að ég má byrja að æfa aftur," segir Ásgeir Sigurgeirsson, leikmaður KA.

Þessi skemmtilegi sóknarleikmaður fór í aðgerð á liðþófa í hné og er enn að jafna sig eftir hana.

„Þetta tekur kannski aðeins lengri tíma hjá mér en hjá öðrum vegna annarra meiðsla í gegnum tíðina."

Ásgeir hefur lent í erfiðum meiðslum í gegnum tíðina en ætti að vera klár í slaginn þegar alvaran fer af stað í Pepsi Max-deildinni 23. apríl

„Ef allt er eðlilegt þá ætti það að vera svoleiðis, þá ætti ég að vera klár," segir Ásgeir.

KA varð fyrir áfalli á dögunum þegar fréttir bárust af því að sóknarmaðurinn Elfar Árni Aðalsteinsson væri með slitið krossband og yrði ekki með á komandi tímabili.

KA ætlar að bæta við sig sóknarleikmanni og eru með danska leikmenn til skoðunar.
Athugasemdir
banner
banner