Albert Guðmundsson skoraði fyrir varalið AZ Alkmaar þegar liðið mætti Excelsior í hollensku 1. deildinni í kvöld.
Elías Már Ómarsson spilar með Excelsior en hann byrjaði á varamannabekknum en kom inná þegar stundarfjórðungur var eftir af leiknum.
Elías Már Ómarsson spilar með Excelsior en hann byrjaði á varamannabekknum en kom inná þegar stundarfjórðungur var eftir af leiknum.
Albert hefur fengið afar fá tækifæri með aðalliði AZ Alkmaar á leiktíðinni en hann hefur komið við sögu í einum leik af þremur í deildinni.
Leiknum lauk með 2-1 sigri Excelsior en mark Alberts kom af vítapunktinum þegar rúmar tuttugu mínútur voru til leiksloka.
Varalið AZ er með tvö stig eftir tvo leiki í 1. deildinni á meðan Excelsior hefur unnið báða sína leiki.
Athugasemdir