„Breaking news," sagði Ásgeir Frank Ásgeirsson í miðjum þætti Gula Spjaldsins í dag. Í kjölfarið fylgdu þau tíðindi að Jökull Andrésson væri „mættur í Aftureldingu". „Hann er að klára að skrifa undir," sagði Ásgeir Frank sem hefur verið í leikmannahópi Aftureldingar unnið í kringum liðið.
Jökull er 23 ára markvörður sem kom á láni til Aftureldingar í sumar og hjálpaði uppeldisfélaginu að komast upp í efstu deild í fyrsta sinn. Hann kom á láni frá enska félaginu Reading og í haust rifti hann svo samningi sínum við Reading.

Jökull var sterklega orðaður við FH og einnig ÍBV en niðurstaðan virðist vera áframhaldandi vera í Mosfellsbæ.
„Þeir hljóta að reyna klára brósa líka," sagði Ásgeir Frank og á þá við eldri bróður Jökuls, Axel Óskar.
Athugasemdir