21.03.21 - 15:24
Ívan Guðjón Baldursson
Enski bikarinn: Chelsea sló Sheffield úr leik

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Chelsea 2 - 0 Sheffield United
1-0 Oliver Norwood ('24, sjálfsmark)
2-0 Hakim Ziyech ('92)
1-0 Oliver Norwood ('24, sjálfsmark)
2-0 Hakim Ziyech ('92)
Chelsea er komið í undanúrslit enska bikarsins eftir að hafa rétt marið Sheffield United í 8-liða úrslitum.
Búist var við að Chelsea myndi vinna þennan leik auðveldlega en sú varð raunin ekki. Chelsea tók forystuna þegar fast skot Ben Chilwell fór af Oliver Norwood og í netið um miðbik fyrri hálfleiks.
Chelsea var betra liðið í fyrri hálfleik en tókst ekki að koma sér í færi. Gestirnir frá Sheffield vöknuðu til lífsins eftir leikhlé og tóku að sækja.
Sheffield, sem er langneðsta lið ensku úrvalsdeildarinnar, sýndi frábæra takta í síðari hálfleik en ekki tókst þó að jafna.
Það ríkti mikil spenna í loftinu á lokakaflanum en Hakim Ziyech kláraði leikinn fyrir Chelsea í uppbótartíma.
Chelsea er þá komið í undanúrslit ásamt Manchester City og Southampton.