Fotbolti.net
21.06.18 - 17:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Í samstarfi við styrktaraðila

Ronaldo útskýrir hökutoppinn - Byrjaði sem grín

Auglýsing
Ronaldo skartar þessum hökutoppi.

Ronaldo skartar þessum hökutoppi.

Canon

Mynd: Getty Images

Cristiano Ronaldo skartaði hökutoppi þegar Portúgal lagði Marokkó að velli á HM í gær.

Portúgal vann 1-0 og skoraði Ronaldo sigurmarkið. Portúgal þarf að forðast tap gegn Íran í lokaleik sínum í riðlinum til þess að tryggja sér farseðil í 16-liða úrslitin.
Það var ekki bara markið hjá Ronaldo sem vakti athygli í gær því hann mætti með skegg í leikinn, nánar tiltekið hökutopp. Ronaldo er ekki þekktur fyrir það að vera með skegg og var því nánar spurður út í það að leik loknum í Rússlandi í gær.

„Skeggið mitt? Þetta byrjaði sem grín á milli mín og Quaresma, við vorum í gufubaði og ég var að raka mig, ég skildi eftir hökutopp og sagði honum að ef ég myndi skora á móti Spáni þá myndi ég ekki raka hann fyrr en eftri mótið,\" sagði Ronaldo.

Ronaldo skoraði þrennu á móti Spáni.

„Þessu fylgdi heppni. Ég skoraði gegn Spáni og Marokkó.\" Hökutoppurinn fær að vera eitthvað áfram.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.