Það er þétt spilað í Lengjudeildinni um þessar mundir. Tólfta umferðin kláraðist í vikunni.
Keflavík vann 6-1 sigur gegn Víkingi Ólafsvík og á þrjá fulltrúa í liðinu, þá Ara Stein Guðmundsson, Joey Gibbs og Kian Williams. Keflavík á flesta fulltrúana, ásamt Vestra sem vann virkilega flottan heimasigur á Leikni Reykjavík.
Reynsluboltinn Bjarni Jóhannsson er þjálfari úrvalsliðsins í þriðja sinn í sumar. Þá áttu Gunnar Jónas Hauksson og Robert Blakala flottan leik fyrir Vestramenn.

Orri Sigurjónsson hefur átt virkilega flott sumar með Þór og er í úrvalsliðinu í fjórða sinn. Alvaro Montejo, samherji hans, er í liðinu í þriðja sinn eftir góðan 5-1 heimasigur gegn Leikni Fáskrúðsfirði.
Hlynur Atli Magnússon og Þórir Guðjónsson eru fulltrúar Fram í liðinu eftir þægilegan sigur á Magna og eiga ÍBV og Grindavík sitt hvorn leikmanninn eftir sigra á Aftureldingu og Þrótti Reykjavík. Tómas Bent Magnússon er fyrir ÍBV og Mackenzie Heaney er fyrir Grindavík.
Á morgun hefst 13. umferð Lengjudeildarinnar.
Fyrri lið umferðar:
Lið 1. umferðar
Lið 2. umferðar
Lið 3. umferðar
Lið 4. umferðar
Lið 5. umferðar
Lið 6. umferðar
Lið 7. umferðar
Lið 8. umferðar
Lið 11. umferðar
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir