Alfreð Elías: Hver einasti leikur er úrslitaleikur fyrir okkur
Auglýsing

Alfreð var sáttur með stigin þrjú.

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

Selfoss vann sinn annan sigur í sumar gegn HK/Víking í kvöld í 7. umferð Pepsi-deildar kvenna.
Alfreð Elías þjálfari Selfoss var ánægður með stigin þrjú að leikslokum. „Við vissum að það yrði erfitt að koma hingað og vissum að þetta myndi kosta þolinmæði,\" sagði hann.

Fyrsta mark Selfoss kom ekki fyrr en á 80. mínútu og eftir það bættust tvo önnur við.
„Þegar markið kom þá leið okkur betur. Þá kveiknaði aðeins á okkur, þetta var búin að vera barátta. Við leyfðum þeim (HK/Víkingur) að fá smá trú á verkefninu en gott að fá markið og þá var engin spurning með þetta.\"
Spurður um framhaldið hafði Alfreð þetta að segja. „Hver einasti leikur er úrslitaleikur fyrir okkur og við verðum bara að fara í hann og leggja okkur fram, þá gengur þetta ágætlega.\"
Næsti leikur Selfoss er heimaleikur við Breiðablik þann 4. júlí.